Þjónusta Árborgar við Tjarnabyggð
Tjarnabyggð er heilsársbyggð. Samkvæmt aðalskipulagi Árborgar skal öll þjónusta koma frá þéttbýlinu. Í samræmi við þetta gerðu landeigendur og Árborg með sér samstarfssamning um rekstur og þjónustu svæðisins. Samkvæmt honum sér Árborg um viðhald vega, snjómokstur, skólaakstur, sorphirðu og tæmingu rotþróa. Jafnframt tryggja viðkomandi veitur heitt og kalt vatn, lýsingu svæðisins og fjarskipti. Stutt er í aðra þjónustu svo sem verslun og læknisþjónustu.Góð reynsla er komin á þessa þætti frá því að fyrstu íbúarnir fluttu í Tjarnabyggð haustið 2007. Hefur m.a. sorphirða, póstþjónusta, fjarskipti,snjómokstur og skólaakstur gengið vel. Einnig er hafið tilraunaverkefni með strætóferðir milli Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar með viðkomu í Tjarnabyggð.
Þjónusta Símans við Tjarnabyggð
Smelltu hér til að skoða upplýsingar um þá þjónustu sem Síminn býður íbúum Tjarnabyggðar upp á. (opnast í nýjum glugga)
