Tjarnabyggð er orðin leiðandi samfélag í aðgengi íbúa að fjarskiptaþjónustu.
 
Með lagningu Símans á ljósneti í Tjarnabyggð, varð hverfið það fyrsta til að ljósleiðaravæðast á landsbyggðinni. Íbúar Tjarnabyggðar geta nú notið þess að hafa fullkomið netsamband og bestu mögulegu myndgæði í Sjónvarpi Símans. Hér er um að ræða fjarskiptatengingu framtíðarinnar sem uppfyllir allar samskiptaþarfir íbúa Tjarnabyggðar á komandi árum.
 
Ljósleiðarinn gefur kost á mun hraðvirkari Internettengingum en þekkjast eftir öðrum leiðum. Bandbreidd er trygg alla leið og engir flöskuhálsar á flutningsleiðinni auk þess sem meiri hraði er mögulegur til og frá notanda. Með því að flytja heimilissímann yfir á ljósleiðarann er símalína óþörf.
 
Með Sjónvarpi Símans opnast aðgangur að öllum íslensku sjónvarpsstöðvunum og yfir 60 erlendum í bestu mögulegu myndgæðum. Í Sjónvarpi Símans er SkjárBíó vídeóleigan, þar sem þú getur valið bíómyndir með fjarstýringunni heima í stofu auk margra fleiri spennandi möguleika.
 
Ríflega 1100 titlar eru aðgengilegar í Sjónvarpi Símans hverju sinni, þar á meðal fjöldi bíómynda og þátta á 0 kr. Myndir sem sýndar eru á Stöð 2, RÚV og Bíórásinni eru aðgengilegar að meðaltali 6 mánuðum fyrr í SkjáBíói vídeóleigunni. Einnig er í boði stærsti hluti allra mynda sem sýndar hafa verið í kvikmyndahúsum landsins auk fjölda athyglisverðra mynda.
 
Viltu taka þátt?
 
Á meðan Síminn er að fínpússa kerfið, býðst íbúum Tjarnabyggðar að vera þátttakendur í notendaprófun gegn því að fá þjónustuna án endurgjalds.
 
Þátttakendur þurfa ekki að hafa neina tæknikunnáttu en vera hins vegar áhugasamir um að nýta sér þá þjónustu sem Síminn hefur upp á að bjóða. Þátttakendur fá háhraðatengingu við Internetið ásamt heimasíma og geta nýtt sér sjónvarpsþjónustu Símans.
 
Á tímabilinu fá þátttakendur eftirfarandi, án endurgjalds:
 
• 30 Mbps Internetþjónustu, ótakmarkað niðurhal
• 2 myndlyklar fyrir Sjónvarp Símans á heimilið
• „Allt“ sjónvarpspakkinn – yfir 60 innlendar og erlendar sjónvarpsrásir
• Grunnáskrift heimasíma á tilraunatímabilinu
• Safnið 10 GB – örugg gagnageymsla fyrir gögnin þín
 
Öll þessi þjónusta verður um ljósleiðara en kostir hans eru gott net-, síma- og sjónvarpssamband.
 
Prófunartímabilið er frameftir vori 2008 og verður tilkynnt með góðum fyrirvara um lok prófana. Að tilraunatímanum loknum mun Síminn bjóða fjölbreytta þjónustu sína yfir ljósnetið í Tjarnabyggðinni.
 
Síminn mun mánaðarlega leggja fram einfalda spurningalista sem þátttakendur skuldbinda sig til að svara.
Einnig þurfa tæknimenn okkar að setja upp búnað heima hjá þátttakendum.
 
Ef þú vilt spyrja nánar um prófanirnar eða staðfesta þátttöku þína, skaltu hringja í síma 800 7000 eða senda tölvupóst á ljosnet@siminn.is.

Staðsetning og skipulag

Yfirlitsmyndir

Landkostir og möguleikar