Hvað segja kaupendur í Tjarnabyggð?
Margrét K. Erlingsdóttir og Jónas R. Lilliendahl eru að byggja íbúðarhús, hesthús og skemmu við Norðurgötu 3 í Tjarnabyggð.
Við störfum bæði á Selfossi Jónas er mjólkurfræðingur hjá MS og Margrét er framkvæmdastjóri bókhaldsstofunar Hjá Maddý sf. og bæjarfulltrúi í sveitarfélagi Árborgar.
Auk okkar býr á heimilinu yngsti sonur okkar Marinó Geir sem er 18 ára, eldri synir okkar tveir Erlingur Örn verkfærðinemi og Gústaf hársnyrtinemi eru báðir fluttir að heiman.Við áætlum að flyta í Tjarnabyggð í ágúst og hlökkum mikið til.
Við eigum líka lóð nr. 1 og lóð nr. 5 þannig að samtals erum við með 6,5 hektara af landi. Við erum þegar búin að láta girða af landið okkar og sleppa hestunum sem una sér vel í nýjum heimkynnum. Reiðvegir verða 16 kílómeter og eru þeir sem þegar hafa verið lagðir gullgóðir. Þetta skiptir máli fyrir okkur hestamenn sem ætlum að setjast að í Tjarnabyggð.
Við völdum Tjarnabyggð vegna nálægðar við þéttbýlið á Selfossi og vegna þess að þjónusta þar verður sú sama og í þéttbýlinu í Árborg.
Með því að flytja í Tjarnabyggð erum við að láta gamlan draum rætast að flytja í sveit, en okkur finnst líka skipta máli að vera samt í bæ.
Í Tjarnabyggð upplifum við sveitina, kyrrðina og höfum fjallasýn en samt sjáum við ljósin hjá nágrönnum okkar. Í Tjarnabyggð hef ég (Margrét) útsýni til heimafjallanna í Rangárþingi sem mér finnst alveg dásamlegt. Út um eldhúsgluggann sjáum við Heklu, Þríhyrning og Eyjafjallajökul, út um stofugluggann öll Ölfusfjöllin eins og þau leggja sig.
Við kaupum af Eðalhúsum ehf. á Selfossi, en þeir byggja fyrir okkur íbúðarhúsið og grunninn að hesthúsinu og skemmunni. Hjá Eðalhúsum er unnið af mikilli fagmennsku og tekið hefur verið tillit til allra okkar óska. Víð mælum þess vegna með þeim Einari Gunnari og félögum í Eðalhúsum, það er mjög hagkvæmt og gott að eiga við þá viðskipti. Húsið okkar ásamt einum hektara af landi er að okkar mati á hagstæðara verði en sambærilegt hús á Selfossi á 800-1000 fermetra lóð, meðal annars vegna þess að við getum byggt allt að 1500 fermetrum á sömu lóð.
Okkar áform eru að vera með 8-10 hesta hjá okkur yfir sumartímann á hluta af landinu, vera með íslenskar skrauthænur og hundarækt. Við erum þegar með eina tík Australian shepherd og áætlum að verða með fleiri hunda. Við ætlum að planta trjám til skjóls og prýðis ásamt því að rækta kartöflur og grænmeti til heimilisins.
Við höfum verið á ferðinni í Tjarnabyggð daglega frá því í byrjun maí og okkar upplifun og tilfinning er þessi; þetta er dásamlegur staður, kyrrðin, friðurinn, fuglasöngurinn og ilmurinn, allt þetta gerir lífið léttara og fyllir hugann af innri frið og tilfinningum til lífsins.
Nú erum við flutt og búin að búa í Tjarnabyggðinni frá því í september 2007 og erum að upplifa vorið hér í fyrsta skipti sem ábúendur. Við erum alsæl og hamingjusöm með nýja heimilið og staðsetninguna. Það að búa hér í sveitinni er ótrúleg upplifun, kyrrðin og friðurinn er yndislegur og að upplifa vorið og fuglalífið er dásamlegt.
Unnar Steinn Guðmundsson
Vinahópur staddur á kaffistofu í hesthúsahverfinu Heimsenda í Kópavogi var að skoða bækling af Tjarnabyggðinni. Úr varð að ferð var gerð hingað austur, litið á aðstæður og þrjár lóðir teknar í Suðurgötunni. Ég er búinn að reisa fjölnota hús sem er sambyggt hesthús og skemma. Það er límtré/yleiningahús frá Húsatækni ehf. og byggingarfyrirtæki sem ég á helming í, Vörðufell ehf., sá um að reisa og innrétta. Í vor verða 14 hross á húsi frá mér og nágrönnum minum. Staðsetning svæðisins gagnvart atvinnulifi og þjónustu er mjög góð og fyrir hestamanninn frábær (með reiðstígum og smá beitilandi sem lengir tímabilið).


Kostir þess að búa í Tjarnabyggðinni eru að landrýmið er stórt og fólk getur byggt sér draumahöllina án nokkura vandkvæða. Við völdum það að búa hér einmitt vegna þessa og byggðum tveggja hæða kanadískt hús sem er keypt frá Emerald.ehf. Það sem heillaði okkur einnig við landrýmið er að langt er á milli húsa og unnt að stunda þá garðyrkju sem að óskað er, mikið rými á lóðinni fyrir bæði hesthús og/eða iðnaðarhúsnæði. Við rekum byggingarfyrirtæki, North Ocen ehf, sem sérhæfir sig í uppsetningu á kanadískum húsum og höfum reist þrjú hús í Tjarnabyggðinni. Það sem að einkennir Tjarnabyggðina er landslagið, frelsið og friðsældin. Það tekur um 40 mínútur að keyra til Reykjavíkur en mikill meirihluti íbúa Tjarnabyggðar vinnur og/eða stundar nám í Reykjavík.
Helgi Haraldsson, Berglind Harðardóttir og Sigurlína Rósa Helgadóttir
Sími: 844-6555
http://www.emerald.is
Hjónin Birgir Ásgeirsson og Juaníta Karen Árnadóttir hafa keypt lóð við Suðurbraut í Tjarnabyggð.
„Við vinnum bæði á Selfossi, ég rek réttinga- og sprautuverkstæðið Bílverk BÁ ehf. og frúin er verslunarstjóri í Leikbæ. Við fundum draumahúsið sem er Kanadískt sveitasetur og þar sem ekki var hægt að byggja það í þéttbýli hófum við leit að rétta staðnum fyrir húsið. Okkur leist fljótt vel á Tjarnabyggð og eftir að hafa skoðað víðar og gert samanburð þá fundum við að Tjarnabyggðin var rétti staðurinn. Ég er sjálfur úr sveit og þarna fengum við stóra lóð, getum við verið með tíkina Þulu og notið náttúrunnar og mikils útsýnis. Við erum ekki með nákvæmar tölur um kostnað við að byggja þetta hús í Tjarnabyggð en það lofar mjög góðu. Í framtíðinni er líklegt að við reisum útihús en við ætlum að láta landið ósnert nema við setjum líklega niður nokkur tré og villta runna hér og þar."
Sveitarstjórnarmaðurinn Eyþór Arnalds og eiginkona hans Dagmar Una Ólafsdóttir eru flutt í Norðurgötu í Tjarnabyggð
"Tjarnabyggð býður upp á það besta úr sveit og bæ; útsýni, kyrrð og alla þá þjónustu sem nútíminn krefst. Sá staður sem býður upp á útsýni til Heklu, sjávarnið frá Eyrarbakka og 100Mbita ljósleiðaratengingu er okkur að skapi. "
Einar Gunnar Sigurðsson byggingaverktaki og íbúi í Tjarnabyggð:
"Eðalhús ehf, sem er félag í minni eigu, festi kaup á nokkrum lóðum á árinu 2006 með það að markmiði að byggja á þeim hús og setja á almennan markað. Miklir möguleikar eru á hverri lóð fyrir sig þar sem byggingarréttur er ríflegur. Þessi möguleiki gefur okkur kost á að byggja sem dæmi hesthús, gestahús og gufu svo eitthvað sé nefnt….eða bara rækta lóðina með trjám göngustígum í bland við tjarnir. Ákveðið var að leggja af stað með byggingu á þremur, 200 m2 einbýlishúsum, sem eru öll seld og búið að panta fleiri.“
Eftir að hafa unnið að byggingu húsanna þriggja, heillaðist ég og fjölskylda mín að staðsetningunni og þeim þægindum sem fylgja þjónustu frá sveitarfélaginu, Árborg. Þar sem ég vinn á Selfossi og kona mín í Reykjavík ákváðum við að setjast að í Norðurgötunni í Tjarnabyggð, en eigum jafnframt litla íbúð í Reykjavík og eigum því heimili sitt hvorum megin við fjallið góða - frábær lausn!"
Nú er vor og sumar framundan og spennandi tímar fara í hönd, allir í fjölskyldunni geta fundið eitthvað við hæfi á þessum friðsæla stað, ræktað lóðina, stráksi getur leikið sér allan liðlangan daginn útivið, stutt er í góða granna til að kynda undir grillinu með og einhverjir hafa meira segja talað um að gott sé að æfa fluguköstin í nærliggjandi tjörnum…..!
Ég hef mikla trú á að Tjarnabyggðin byggist hratt upp á næstu 2-3 árum og þar verði mikið líf og fjör."
Gylfi og Linda eru flutt í Tjarnabyggð af Selfossi
„Við erum 4 í fjölskyldunni, Gylfi Birgir Sigurjónsson , Linda Rós Jóhannesdóttir, Oliver Ingvar Gylfason 10 ára og Hafþór Elí Gylfason 1 árs. Ég er kennari við Vallaskóla á Selfossi og Linda vinnur í Leikbæ á Selfossi.
Við vorum að leita okkur að húsnæði og duttum niður á hús frá Svíþjóð sem okkur langaði að kaupa og flytja til íslands. Þegar við fórum að athuga lóðir og staðsetningu fyrir húsið þá fannst okkur að það kæmi best út að staðsetja það aðeins fyrir utan þéttbýliskjarna. Við skoðum lóðir í Tjarnabyggð, vorum ánægð með verð og skipulag svæðisins og ákváðum að slá til og reisa húsið þar.
Við ætlum að gróðursetja mikið af trjám og karftöflur verða ræktaðar í bakgarðinum en ekki er hugmyndin að fara í neina stórræktun á svæðinu. Það sem heillar okkur við staðsetninguna er það að vera aðeins út í sveitinni og njóta þjónustu þéttbýlisins.“
Horft eftir göngu- og reiðstíg í Tjarnabyggð, en þegar er búið að leggja um helming af þeim 16 km sem verða innan byggðarinnar. 

